» 1 hafa sagt sína skoðun
Já þið lásuð rétt. Ég hef tekið mér pásu frá DANSKA, er samt ekki að borða á mig gat. Hugsa vel um það sem ég borða var allt í einu komin með ógeð á öllu því magni sem ég borðaði gat ekki meira
Kæru vinkonur Vonandi gengur vel hjá ykkur.
Knús og kossar Elsa Hlín
» 7 hafa sagt sína skoðun
er bara löt að blogga eða brjálað að gera, tíminn æðir svo áfram að ég kem engu í verk er hætt að skilja þetta jólin verða komin áður en ég veit af
Vonandi gengur ykkur vel. voðalega eru margar hættar eða bara latar að blogga eins og ég. Flestir tenglarnir mínir virðast vera hættir og búnir að loka síðunum, nú ætla ég að vera duglegri að blogga og kvitta hjá ykkur.
Kæru vinir knús og kossar Elsa Hlín
ps fór í vigtun og bætti á mig 400 gr var í þungu gallapilsi og vona að það sé ástæðan.
» 14 hafa sagt sína skoðun
Ég er svo ánægð með allt náði af mér 800 grömmum 1. vikuna. ég veit sem er að ef ég hætti á DANSKA þá enda ég í hjólastól vegna offitu svo það er eins gott að standa sig í BARÁTTUNI við spikið. það þurfa allir að berjast við eitthvað í þessu lífi og er fitupúkinn eitthvað verri en annað.
Eru ekki allir hressir á góðu sumri,kæru vinir
BARÁTTUKVEÐJUR ELSA HLÍN
» 10 hafa sagt sína skoðun
Sumarfríið búið og allt sukk. fór í vigtun í dag og hef bætt á mig rúmum 2 kílóum semsagt slapp nokkuð vel. Hefði getað verið verra8
Knús og kveðjur Elsa Hlín
» 2 hafa sagt sína skoðun
þó hægt fari, fór í vigtun í gær 400 grömm niður
Gangi ykkur vel DÚLLURNAR mínar
knús og kveðjur Elsa Hlín
» 9 hafa sagt sína skoðun
Kæru BLOGGARA, ég er komin aftur SÓLBRÚN og FEIT
Fór í vigtun í gær bætti á mig 3,2 kílóum hræðilegt en svona er lífið skin og skúrir. Markmið mín eru dottin út af síðunni ég tók þau ekki, en gott að þau eru farin, því að ég verð að losna fyrst við þessi 3,2 og síðan að gera áætlun um framhaldið.
Allir vita að matarfíklar kunna sér ekkert hóf og verða að halda sér við prófgramið annars er maður fljótur að bæta á sig. Ég er matarfíkill því miður.
Ferðin var í allastaði dásamleg, það væsir ekki um fjölskylduna á Kanarí,svo styttist í að hún komi aftur heim.
Vona að ykkur hafi gengið betur en mér BARÁTTUKVEÐJUR
ELSA HLÍN
» 12 hafa sagt sína skoðun
já er orðin ferðafær, legg að stað í fyrramáli.
Vonandi hafið þið það gott á meðan ég er í sumarfríi
Knús og kveðja Elsa Hlín
» 11 hafa sagt sína skoðun
Er að drepast úr kvefi og vesöld, fór ekki í vigtun í dag er líka með smá hitavellu. Verð fljót að náþessu úr mér hef ekki tima til þess að vera veik stutt í brottför. varð bara að láta vita af mér.
Vonandi hafið þið það gott kæru bloggarar
Gangi ykkur öllum vel Baráttukveðjur Elsa Hlín
Já nú er vinnu helgi framundan, svo að það verður engin tími til að blogga um helgina.
Úti snjóar og snjóar, nenni ekki að fá meiri snjó en það er víst ekki ég sem ræð því.
Er með góða samvisku hef verið alveg 100% í mataræðinu þessa viku, ef ég kveð ekki 500 gr mín næsta þriðjudag þá hlít ég að ganga í svefni og heimsækja ísskápin hver veit ?????????????
Kæru átaksbloggarar þakka ykkur allan stuðning og eigið góða helgi.
................................. Baráttukveðjur Elsa Hlín
Vigtin sagði niður um 1,5 kíló sem betur fer er núna 82 kíló , í dag eru 14 vikur í útskrift og nú dugar ekkert nema harkan sex bara borða 30 gr af brauði á dag. vigta allt sem inn fer um mínar varir ( hef oftast gert það ) ekkert vol og væl er hætt að vera rokkari búin með kvótan ó já
Nú eru bara 15 dagar þangað til að ég fer til KANARÍ húrra-húrra húrra fyrir því verð fegin að komast í hitan þá lagast giktin í gömlu konunni. svo verður frábært að hitta dóttir mína og fjölskyldu, þeir sem ekki vita þá er Hjúkka Björk dóttir mín
Kæru átaksbloggarar þið eruð frábærar og hafið stutt mig í gegnum súrt og sætt með ykkar peppi
Baráttukveðjur Elsa Hlín................................
Ó já ég ÆTLA, GET OG SKALútskrifast hjá DDV 12 júní 2007 í síðasta lagi það eru nú bara eftir 7- 8 kíló svo ég þarf að missa 500 grömm á viku.
ÞAÐ SKAL TAKAST
Hvað haldið þið kæru bloggvinir.
Baráttukveðjur Elsa Hlín
Ég setti þessa flottu mynd á bloggið til þess að sýna að DANSKI virkar, held bara að þið hafið haft gaman að sjá mig um 100 kíló ég hafði það ha....ha........
Ég skal aldrei verða svona BOLLA aftur ég segi það satt, en ég skil samt ekki í því að ég skuli eiga svona erfitt með að ná af mér síðustu 7-8 kílóunum hef ekkert svindlað síðan á þorrablótunum hvað á ég að gera HJÁLP........
Elsku dúllurnar mínar þakka ykkur allan stuðninginn, þið eru frábærar (það koma nýjar tölur á þriðjudaginn komst ekki síðast í viktun var að vinna.)
» 5 hafa sagt sína skoðun
FANN EINA FLOTTA
Fyrsta myndin er tekin fyrir DDV eða í okt 2005. Miðjumyndin þegar um 10 kg eru farin og sú siðsta þegar rúm 20 kg eru farin
» 23 hafa sagt sína skoðun
: Já held mig við ROKKIÐ, fór upp um 1,2 kíló og ég veit upp á mig skömmina í þetta sinn, sem sagt þá var ég að vinna um helgina og á föstudagskvöldið höfðum við þorrablót í vinnuni bæði fyrir starfsfólk og heimilisfólk, ég borðaði of mikið eins og allir. Á laugardagskvöldið fórum við svo með skjólstæðingana á þorrablót og þar svindlaði ég á sjálfri mér. sem sagt ég er stútfull af salti og óhollustu. en nú verður tekið á því og bara farið eftir DANSKA
Takk fyrir öll innlitinn dúllurnar mínar og gangi okkur vel